Reykjanes geopark
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Curabitur euismod dui a urna consectetur tincidunt. Aliquam feugiat ultrices nisi in auctor. Praesent commodo sit amet massa in fringilla.
24 Destinations
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Curabitur euismod dui a urna consectetur tincidunt. Aliquam feugiat ultrices nisi in auctor. Praesent commodo sit amet massa in fringilla.




Austan við gosstöðvarnar í Geldingadal stendur Stóri-Hrútur, 352 metra hátt keilulaga fjall. Ígegnum tíðina hafa örnefni svæða sem þykja sérlega torfarin stundum verið kennd við hrúta. Með núverandi slóða sem liggur upp eftir suðurhlíð hans er Stóri-Hrútur ekki sérlega torfarin en hann er þó brattur og grýttur svo áður fyrr hefur uppferðin verið mun erfiðari. Samkvæmt sögubókum ber Stóri-Hrútur víst fleiri en eitt nafn en Grindvíkingar hafa oft kallað hann Litla-Hrút og aðrir Syðri-Keilisbróður. Bæði nöfnin verða að teljast nokkuð viðeigandi þar sem hann er hvorki mjög hár í loftinu og er alveg í laginu eins og Keilir. Til að komast að Stóra-Hrút eru þrjár leiðir í boði og tilvalið að gera einhvers konar hringferð úr leiðinni. Þægilegaster að leggja bílnum hér og ganga þaðan. Ýmist er hægt að halda upp Langahrygg og ganga eftir honum eða öðru hvoru megin við hann, eftir Merardölum eða norður Nátthaga. Leiðirnar eru mislangar en heildar vegalengd getur verið um 7-10 km báðar leiðir. Nátthagi liggur vestan við Langahrygg en hann er meira og minna fullur af hrauni sem gaman getur verið að skoða. Þar hafa myndast magnaðir litir og getur gufa legið uppúr hrauninu í langan tíma eftir að gosi lýkur og því tilvalið að sjá svæðið á meðan enn er hiti í því. Langihryggur býður svo uppá skemmtilega útsýnisferð en gosstöðvarnar sjást vel þegar gengið er eftir hryggnum. Rúsínaní pylsuendanum er síðan uppi á Stóra-Hrúti sjálfum en þaðan sést einn stærsti gíganna hvað best. Stóri-Hrútur og svæðið umhverfis Langahrygg er með skemmtilegri göngusvæðum Reykjaness og eftir gosið hefur það verið eitt vinsælasta útivistarsvæði landsins sem flestir ættu að upplifa fyrr en seinna.





Áður en gosið í Geldingadölum vatt upp á sig gat fólk nokkurn veginn farið hvaða leið sem er að gosstöðvunum og staðið hvar sem er til að upplifa eldgosið. Nokkrum mánuðum síðar var það ekki alveg jafn aðgengilegt og í kjölfarið varð Langihryggur óvart ein vinsælasta gönguleið landsins. Langihryggur er tæplega 300 metra hár hryggur sem liggur með fram Nátthaga, en það er einmitt dalurinn þar sem gosið náði sem næst sjónum. Leiðin er mjög aðgengileg og hægt að velja nokkra mismunandi upphafspunkta en við mælum með því að bílnum sé lagt á bílastæði 2 fyrir gosið eða bílastæði B. Frá báðum bílastæðum er auðvelt að fylgja stígum og stikum þar til Langihryggur blasir við, en hann ber nafn með rentu og er einmitt langur hryggur. Gangan er um 5-7 km báðar leiðir með nokkuð þægilegri hækkun. Áður en haldið er upp á hrygginn sjálfan getur verið gaman að ganga niður að hrauninu og skoða það. Þegar gengið er eftir hryggnum er stórbrotið útsýni yfir gosstöðvarnar þar sem einn af síðustu virku gígunum trónir vígalegur á toppnum í fjarska. Reykur og gufur geta sést löngu eftir að gosi lýkur og því er tilvalið að sjá svæðið á meðan enn er hiti í hrauninu. Ef tími og orka leyfa þá getur verið gaman að lengja gönguna aðeins og bæta við hana ferð upp á Stóra-Hrút, en hann tekur við í beinu framhaldi af hryggnum. Þar er einnig frábært útsýni yfir gosstöðvarnar og víðar. Þægilegast er að fara sömu leið til baka að bílastæðinu. Engan sérstakan búnað þarf nema ef um ræðir vetrarferð í hálku og/eða snjó.




Það þarf eflaust ekki að minna marga á eldgosið sem hófst 19. mars 2021, kennt við Fagradalsfjall. Hæsti tindur þess svæðis heitir Langhóll og er um 390 metra hár. Þótt gangan hafi boðið upp á fallegt útsýni áður en gosið átti sér stað, þá varð útsýnið alls ekki síðra eftir það. Á leiðinni er gott útsýni yfir gosstöðvarnar og magnað að sjá hvernig hraunið hefur fyllt upp í botn Geldingadals. Til að komast að Langhóli er ýmist hægt að keyra Suðurstrandarveginn (nr. 427) um Krýsuvík eða Þorlákshöfn eða með því að fara í gegnum Grindavík. Gott er að byrja gönguna við bílastæði 1 fyrir gosstöðvarnar. Þaðan er gengið eftir merktum stíg í gegnum hraunið og í átt að gossvæðinu. Eftir rúman kílómeter skiptist stígurinn í tvennt, önnur leiðin liggur í átt að gosinu, en til að komast að Langhóli skal beygja til vinstri. Leiðin er stikuð og leiðir mann í átt að smá brekku brölti, en þar er þessi fíni kaðall sem gerir ferðina upp auðveldari. Þegar upp er komið halda stikurnar áfram og leiða mann stystu leið að útsýni yfir gosstöðvarnar. Þar sem engar stikur beina manni í átt að Langhóli getur verið þægilegt elta stikurnar þar til gígurinn og hinn nýlega hraunfyllti Geldingadalur blasir við og halda svo áfram með fram brúninni. Frá kaðlinum eru um 2,5-3 km að toppi Langhóls og þar sem hann er hæsti punktur svæðisins liggur beinast við að fara brattann og vinna sig hægt og rólega upp í móti. Á leiðinni má finna fjöldann allan af litlum hraunmolum úr gosinu í Geldingadölum. Þegar nær dregur toppnum ætti að glitta í útsýnisskífu og þá er ekki eftir neinu að bíða og best að gefa aðeins í síðustu metrana áður en útsýnið og nestið tekur við. Á toppnum er svo frábært útsýni yfir Þráinsskjaldarhraun, Keili og til Grindavíkur. Skemmtileg ganga sem hentar flestum.




Norðan við Grindavík og rétt hjá Bláa lóninu liggur fellið Þorbjörn. Fellið myndaðist á síðasta kuldaskeiði ísaldar, við gos undir jökli, og er að mestu úr bólstrabergi. Þrátt fyrir að vera aðeins 243 metra hátt býður það upp á skemmtilegar og nokkuð fjölbreyttar göngur sem ættu að henta flestum. Hægt að byrja gönguna á nokkrum stöðum, en einfaldast er að byrja við bílastæði við Grindavíkurveg. Þar liggur gamall vegur upp eftir mesta brattanum og tvístrast svo þegar upp er komið. Fjallið stendur á misgengissprungum sem hafa myndað grunnan sigdal. Þar má sjá ummerki og leifar frá seinni heimsstyrjöld en setulið Bandaríkjamanna setti upp bækistöð í skjóli dalsins. Við sprunguhreyfingar hefur orðið til mikil hamragjá á toppi fjallsins sem kölluð er Þjófagjá. Sagan segir að þar hafi falið sig 15 þjófar, sem lögðust á fé Grindvíkinga. Það var ekki fyrr en bóndasyni frá Hópi tókst að svíkja þá er þeir böðuðu sig á Baðsvöllum, norðan við Þorbjörn, sem þeir náðust loksins. Meira má lesa um þjófana og afdrif þeirra hér. Þegar upp er komið er möguleiki á nokkrum mismunandi leiðum. Upp á topp, í gegnum Þjófagjá og umhverfis toppinn. Hvert sem farið er má búast við frábæru útsýni í allar áttir. Það tekur ekki langan tíma að skoða hina ýmsu kima Þorbjarnar og fyrir þá sem vilja síður ganga upp á fjallið er einnig skemmtilegt að ganga í kringum það. Undir norðurhlíðum fjallsins er svo fallegur skógur sem nefnist Selskógur og er tilvalinn til útivistar.





Geitahlíð er falleg grágrýtisdyngja rétt austan við Krýsuvík sem býður upp á skemmtilega og nokkuð greiðfarna göngu. Auðvelt er að komast að henni, annaðhvort um Krýsuvíkurveg (nr. 42) eða Suðurstrandarveg (nr. 247) og bílastæði er við upphaf göngu. Á láglendinu sunnan við Geitahlíð er gígurinn Stóra-Eldborg sem er tilvalið að kíkja á áður en haldið er upp Geitahlíð. Hægt er að ganga alveg upp á gígbrúnina og sjá ofan í gíginn sjálfan. Við hlið hans er Litla-Eldborg, en slóðinn upp Geitahlíð hverfur fljótlega eftir hana og ekki endilega augljóst hvert skal fara. Tiltölulega einfalt er þó að vinna sig upp grýtta hlíðina. Þegar upp mesta hallann er komið liggur beint við að halda í átt að hæsta punkti Geitahlíðar, svokölluðum Æsubúðum. Æsubúðir eru nokkuð stór gígur á toppi fjallsins, en sagan segir að þar hafi eitt sinn verið verslunarstaður jötna. Á tímum þegar sjórinn náði upp að Geitahlíð hafi svo verið hægt var að leggja skipum við Hvítskeggshvamm (norðaustan við Eldborgirnar). Þegar upp er komið er skemmtilegt að ganga eftir brúnum Æsubúða og bæta þannig stuttri lykkju við ferðina. Af toppi Geitahlíðar er frábært útsýni til allra átta, sérstaklega yfir Kleifarvatn, Sveifluháls og Stapatinda.





Grænadyngja er einstakt fjall og umkringt fallegum vötnum, háhitasvæði og öðrum tindum. Það er hægt að byrja gönguna við Eldborgargíginn eða við gamla borholu við Sogin. Ef byrjað er við Eldborg er hún aðeins meira krefjandi en ef byrjað er við Sogin en þar byrjar ganga á litlu gili sem er skemmtilegt að klöngrast upp en einnig er hægt að fara „vinstra“ megin við það. Það eru nokkrar útfærslur af heildargöngunni en þær taka flestar um 2-3 klst. og eru um 5-8 km með 350m hækkun. Það er mjög gaman að tengja þessa göngu við Trölladyngju og Sogin með nokkrum mismunandi útfærslum.
Eitt ævintýralegasta göngusvæði Reykjaness felur sig við Grænudyngju og Trölladyngju. Grænadyngja er eldfjall sem myndaðist við gos undir jökli fyrir lok ísaldar og rétt við hana er Trölladyngja, en oft er talað um fjöllin sem tvíbura og saman eru þau kölluð Dyngjurnar. Til að komast að Grænudyngju er ekið eftir Reykjanesbraut og þegar komið er að gatnamótum Vatnsleysustrandar er sveigt út af brautinni og inn á malarveg sem merktur er Keili. Malarvegurinn er nokkuð grófur, en þó fær flestum bílum á sumrin en minni bíla þarf að keyra hægt. Þegar komið er að bílastæði fyrir Keili er haldið áfram til vinstri. Eftir um 1 km er aftur beygt til vinstri þar til komið er að gígnum Eldborg þar sem hægt er að leggja bílnum, sjá kort. Beint suður frá Eldborg er lítið gil sem markar upphaf göngunnar. Gilið krefst ekki tæknilegs klifurs en ef einhver treystir sér ekki þar upp er einnig hægt að ganga upp hlíðarnar austan við það. Haldið er áfram niður í grunnan dal og loks upp eftir suðurhlíðum fjallsins. Þar uppi tekur á móti manni einstakt svæði, grasi gróið og yfirleitt skjólsælt. Gengið er aðeins lengra, þar til nokkuð brött skriða blasir við. Gengið er upp eftir henni þangað til toppi Grænudyngju er náð. Aðeins sunnar er að finna eitt besta mögulega útsýni yfir háhitasvæðið Sogin og vötnin þar í kring. Ef tími og aðstæður leyfa er tilvalið að bæta við gönguna ferð niður í Sogin og Trölladyngju svo úr verði skemmtileg hringferð. Ef ætlunin er að fara niður í Sogin er haldið áfram eins og leið liggur niður suðurhlíðar Grænudyngju þar til Sogunum er náð. Ef ætlunin er að fara einnig upp á Trölladyngju aftur að bílastæðinu, er best að halda í vestur og ganga niður eftir grasi grónum hlíðum Grænudyngju og niður í dalinn sem liggur á milli fjallanna. Ef ætlunin er einfaldlega að komast ofan af Grænudyngju aftur á bílastæðið, er tilvalið að halda niður vesturhlíðar fjallsins, ofan í dalinn þangað til komið er aftur að gilinu sem farið var upp í upphafi göngu. Á veturna getur verið erfitt að komast að Grænudyngju og ef ætlunin er að ganga upp hana að vetri til er vissara að hafa viðeigandi vetrarbúnað meðferðis.