Þorbjarnarfell
-
Length2 km
-
difficultyAverage
Explore the beauty of Þorbjarnarfell
Stakt móbergsfjall (243 m.y.s) norður af Grindavík. Misgengi þvera það og mynda grunnan sigdal. Hluti hans kallast Þjófagjá eftir 15 misyndismönnum sem þar eiga að hafa dvalist.
Af því er mikið útsýn yfir mikinn hluta Reykjanessfjallgarðsins. Norðaustan í fellinu er mikil jarðhitamyndun og norður og norðaustur af því er allvíðáttumikið jarðhitasvæði. Fjallið er með mikinn sigdal á toppnum. Þorbjörn er myndaður á síðasta kuldaskeiði ísaldar, eins og flest önnur jföll á Reykjanesi.
Uppi á fellinu er gjá eða sprunga sem heitir Þjófagjá, að sögn eftir 15 þjófum sem höfðust við í gjánni og stálu fé Grindvíkinga. Voru þeir síðast unnir með prettum að því er sagan segir.
Í heimsstyrjöldinni síðari hafði setuliðið bækistöð/varðstöð í sigdalnum og lögðu veg upp á fjallið. Sjást vel ummerki um byggingar setuliðsins frá þessum tíma.
Auðvelt er að ganga á Þorbjörninn bæði að norðanverðu upp eftir misgenginu og að austanverðu þar sem gamli bílvegurinn liggur. Undir norðurhlíðum fjallsins hafa Grindvíkingar ræktað skóg og er svæðið tilvalið til útivistar.
Previous
Next

Location
Þorbjarnarfell

Coordinates
Latitude
63.865223
Longitude
-22.436916
Map Key
-
Location
Related destinations
- Easy
- Average
- Hard
- Very Hard
difficulty
Easy
Thorshofn
One of the main German trading post in Iceland during the 15th and 16th centuries. During the 19th century, ships started frequenting the harbour again but it was gradually abandoned, as the Sandgerði harbour was improved.







