Reykjanesbókin - fangar ægifagra náttúru Reykjanes Geopark

5.990 kr.

//English below
Reykjanes UNESCO Global Geopark hefur gefið út veglega bók um Reykjanes þar sem finna má fjölda ljósmynda af einstökum Reykjanesskaganum og tilvísanir í menningu og sögu þessa landshluta sem kalla má hliðið inn í landið.

Reykjanes UNESCO Global Geopark er einstakt svæði á heimsvísu en þar rís Mið-Atlantshafshryggurinn úr sæ en á fáum stöðum í heiminum er hægt að skoða sprungumyndanir sem eru jafn lýsandi fyrir gliðnun milli jarðskorpufleka þar sem skiljast að Ameríka og Evrópa.

Í bókinni er tvinnað saman náttúru og landslagi, menningu og fólki sem og nýsköpun og atvinnu til að gefa nokkra mynd af þessu samfélagi suður með sjó. Landslagið er eldbrunnið og hrjóstrugt við fyrstu sín og hefur því verið líkt við tunglið, gott ef æfingar fyrir tunglgönguna hafi ekki farið fram þar, en þegar betur er að gáð birtist ægifegurð skagans sem er einstök í hrikaleik sínum. Má þar nefna íðilgræna sprungugíga, mosaheiðar, hverasinfóníu og leiraugu þar sem orkan kraumar í iðrum jarðar enda er Reykjanesið háhitasvæði sem hefur séð Suðunesjamönnum ríkulega fyrir orku. Brimið á Reykjanesi er stórfenglegt þar sem Atlantshafsaldan skellur fyrst á landinu en þó er veðurfar á Reykjanesi með þeim mildari á landinu.

Bókin gefur tónlistararfi Suðurnesjamanna góð skil en þar eru birtir textar vinsælla dægurlaga allt frá 7. áratuginum og fram til dagsins í dag en þar má nefna Rúnar Júlíusson, Villa vill, Jóhann Helgason, Valdimar og Of Monsters and Men. Einnig eru birtir textar eftir þekkt skáld sem tengjast Reykjanesi á einn eða annan hátt og má þar nefna ljóðskáldið Stein Steinarr sem starfaði sem vitavörður á Reykjanesvita, elsta vita landsins, um nokkurt skeið, Hannes Sigfússon sem skrifaði bókina Strandið um einn mannskæðasta skipskaða sögunnar við Valahnuúk, Jón Kalman og Guðberg Bergsson auk þess sem segja má að þar hafi Hallgrímur Pétursson stigið fyrst fram á sviðið sem trúarskáld þegar hann orti um dóttur sína og hjó henni minningarstein á Hvalsnesi.

Ljósmyndirnar eru flestar teknar af Þránni Kolbeinssyni sem býr í Grindavík og hefur honum tekist að gefa okkur nýja sýn á Reykjanes. Voru þær unnar í samstarfi við Markaðsstofu Reykjaness og Hekluna, atvinnuþróunarfélag Suðurnesja og var þeim ætlað að gefa fjölbreytta mynd af samfélagi og náttúru sem á sér engan líka. Lögð var áhersla á að gefa mynd af samspili manns og náttúru og hvernig það samtal verður til hvort sem það er á brimbretti í öldunum út af Grindavík, sjósund við sólsetur á Garðskaga, kajak á Kleifarvatni eða dýfa í djúpan hyl á heitum sumardegi.

Um er að ræða metnaðarfullt bókverk sem allir ættu að hafa gaman af því að eiga.

Kilja – 2020 – 198 bls

//

Reykjanes UNESCO Global Geopark has published a special book about Reykjanes where you can find  incredible photographs of the unique Reykjanes peninsula and references to the culture and history of this part of the country, which can be called the gateway into Iceland. The book combines nature and landscape, culture and people as well as innovation and employment to give some idea of ​​this community south by the sea. The landscape is fiery and barren at first, and has therefore been likened to the moon, good if exercises for the moonwalk did not take place there, but when you look closely, the beauty of the peninsula appears, which is unique in its ruggedness. These include the evergreen fissure crater, moss heaths, hot spring symphony and mud pots where the energy simmers in the bowels of the earth, as Reykjanes is a high-temperature area that has provided the people of Reykjanes with plenty of energy.

Paperback – 2020 – 198 pages